Sviðslistamaðurinn Friðgeir Einarsson er búsettur í Reykjavík, þar sem hann starfar sem leikari, leikstjóri og skáld. Friðgeir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2008 með B.A. gráðu í fræði og framkvæmd. Hann hefur síðan unnið sjálfstætt og í samstarfi við nokkra sjálfstæða leikhópa, t.a.m. leikhópana Ég og vinir mínir og 16 elskendur. Undanfarin ár hefur Friðgeir tekið þátt í sýningum á borð við Húmanímal, Verði þér að góðu, Nígeríusvindlinu og Ókyrrð, og sýnt verk sín á leiklistarhátíðum hvort tveggja á íslenskri grund og erlendri. Nýjasta einstaklingsverk Friðgeirs, Ekkert, var sýnt á Sequences hátíðinni í Reykjavík 2011 og fól í sér útgáfu bókarinnar Leiðarvísir til handa leikmönnum um merkingarhraðal. Friðgeir er jafnframt með B.A. gráðu í íslensku frá Háskóla Íslands.
–
Friðgeir Einarsson, born in Reykjavík in 1981, is a Reykjavík-based theater artist, working as a performer, director and writer. In 2008 Friðgeir graduated from the Theater Department of the Icelandic Academy of Art with a B.A. in Contemporary Theory and Practice. He has since worked independently and collaborated with several Icelandic theater ensembles, including “Me and my friends” and “16 lovers.” Friðgeir has participated and performed in theater pieces such as Humanimal, Be my guest, The Nigerian Scam and Disturbance, some of which have been performed in festivals in Germany and Canada. Friðgeir’s latest solo work, Nothing, was a part of the Sequences festival in Reykjavík in 2011 and included the publishing of the book The Amateur’s Guide to the Large Signification Collider. Friðgeir also has a B.A. in Icelandic language from the University of Iceland.

No comments